
Grænkálsbuff
Grænkál hefur verið kallað „the new beef“, „the queen of greens“ og „a nutritional powerhouse“ á bandarískum matarbloggum og sífellt fleiri eru að uppgötva þetta hráefni. Og það með réttu. Grænkál er hitaeiningasnautt, fitulaust og trefjaríkt. Þetta bragðmikla grænmeti, sem gott er að tyggja, inniheldur auk þess járn, kalk, andoxunarefni, omega-3 og K-, A- og C-vítamín.
Hráefni
× 1-
500 g
grænkál
-
½ dl
hveiti
-
1 dl
brauðrasp
-
2 msk
næringarger
-
2-3 msk
olía
-
1 tsk
edik
-
2 msk
tamari
-
2 tsk
timjan
-
2 tsk
pipar
-
½ tsk
salt
-
Byrjaðu á því að gufusjóða grænkálið í eða þar til það er alveg mjúkt. Einföld leið til að gufusjóða er að setja stálsigti ofan í pott, leggja grænkálið í sigtið og sjóða smá vatn undir. Þá gufusoðnar grænkálið og næringarefnin varðveitast vel. Þú þarft stórt sigti og stóran pott fyrir 500 g af grænkáli (það skreppur saman þegar það hefur gufusoðnað um stund). Ef þú hefur ekki tök á því geturðu líka soðið grænkálið, en notaðu þá eins lítið vatn og hægt er.
-
Saxaðu grænkálið vel eða maukaðu það í blandara, smátt og smátt.
-
Blandaðu öllum hráefnunum saman í deig. Mótaðu lítil buff.
-
Steiktu í um á hvorri hlið.
-
Berðu fram með til dæmis kartöflugratíni eða pressuðum kartöflum.